Sýning Safnahúss um byggingu Hvítárbrúarinnar 1928 verður einn dagskrárliða á Evrópsku ári menningararfs (European Year of Cultural Heritage 2018). Verður sýningin opnuð 1. nóvember og er unnin í samvinnu við Helga Bjarnason blaðamann sem hafði frumkvæði að verkefninu. Einnig mun Vegagerð ríkisins koma að málinu. Það er Minjastofnun Íslands sem velur viðburði á dagskrá menningarársins og lagt er til grundvallar að Hvítárbrúin var á sínum tíma mikil samgöngubót og þáttur í breyttu ferðamunstri landans, þ.e. breytingunni sem átti sér stað þegar fólk hætti að ferðast mest á sjó og fór að ferðast meira á landi. Hvítárbrúin opnaði á sínum tíma dyr innan héraðs og hafði mikil áhrif á atvinnulíf og félagslíf héraðsbúa. Safnahús mun nota einkennismerki menningararfsársins í tengslum við kynningu á viðburðinum.

Þess má geta að sýningin verður helguð minningu Þorkels Fjeldsted í Ferjukoti (1947-2014) sem var í senn þekkingarbrunnur og mikill áhugamaður um sögu brúarinnar og miðlun fróðleiks um hana.

Það er Evrópuráðið og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins sem hefur útnefnt árið 2018 sem „Menningararfsár Evrópu.“ Þá fer fram fjöldi viðburða sem leggja áherslu á evrópsk tengsl og sameiginlegan menningararf. Meginþemað er gildi menningararfsins fyrir einstaklinga og samfélög og á Íslandi hefur verið ákveðið að leggja sérstaka áherslu á strandmenningu.

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, setti Menningararfsárið formlega í Þjóðminjasafninu fyrir stuttu. Við það tækifæri sagði hún m.a.: „Það er mikilvægt verkefni að rannsaka menningararf okkar, en ekki síðra verkefni að varðveita hann fyrir komandi kynslóðir og varðveita heimildir um hann og minjar. Og loks þarf að miðla upplýsingum um menningararfinn, um rannsóknir á honum og um varðveislu hans fyrir komandi kynslóðir. Miðlunin er forsenda þess að hægt sé að skapa skilning á gildi menningararfsins og afla aukins fjár til að sinna verkefnum, og því skiptir miklu máli hvernig til tekst á þessu sviði.“

Ljósmyndir með frétt (Guðrún Jónsdóttir): a) Sæmundur Sigmundsson ekur yfir Hvítárbrúna á fornrútu sinni í tilefni af 80 ára afmæli hennar 2008. Þá var haldin mikil hátíð sem hófst á Hvanneyri þaðan sem ekið var skrúðkeyrslu að Ferjukoti og afhjúpuð voru upplýsingaskilti við ána um byggingu brúarinnar. Átti Þorkell Fjeldsted mikinn þátt í þessu verkefni. Var ennfremur haldið upp á 90 ára afmæli fyrstu dráttarvélarinnar þennan dag.   b) Þorkell ávarpaði samkomuna af bílpalli.

 

Categories:

Tags:

Comments are closed