Í lok síðustu viku barst vegleg gjöf til Héraðsskjalasafnsins. Um var að ræða ljósmyndasafn Einars Ingimundarsonar málara sem  lést fyrir um 17 árum.  Safnið er mikið að vöxtum og afar vandað. Það var sonur Einars, Ingimundur Einarsson sem færði Héraðsskjalasafninu myndirnar fyrir hönd fjölskyldu sinnar með það í huga að sem flestir geti notið þeirra í framtíðinni. Jóhanna Skúladóttir héraðsskjalavörður tók á móti þessari miklu gjöf sem er sérstakur fengur nú, þar sem vinna við ritun sögu Borgarnes stendur yfir. Sú bók kemur út á vegum Borgarbyggðar árið 2017 í tilefni af 150 ára afmæli Borgarness og er höfundur hennar Egill Ólafsson. Ljósmyndir skipa stóran sess í bókinni, en einnig er fyrirhuguð sýning á ljósmyndum Einars í Safnahúsi í tengslum við afmælið þegar þar að kemur.

Einar Ingimundarson var fæddur í Borgarnesi 24. júní 1929. Foreldrar hans voru hjónin Ingimundur Einarsson og Margrét Helga Guðmundsdóttir og var Einar næstelstur sex bræðra. Hann nam myndlist í Þýskalandi og Svíþjóð og mörg verka hans eru merkar heimildir um staðhætti og byggingar í Borgarfirði. Einar starfaði lengst af sem húsamálari í Borgarnesi, en sinnti einnig myndlistinni talsvert og hélt sýningar, þá fyrstu í Borgarnesi árið 1947. Hann tók einnig ljósmyndir og kvikmyndir af merkum atburðum í Borgarfirði og hélt sýningar á þeim í Borgarnesi og víðar.

 

Einar hafði sem myndlistarmaður næmt auga fyrir myndefni og formum og viðfangsefni hans voru oftast úr hans heimahéraði. Ljósmyndir hans eru því mikilvæg staðfræðileg heimild um Borgarnes og nágrenni á árabilinu 1960-1980.  

 

Ljósmynd 1: Við afhendingu myndanna. Frá vinstri: Gísli Hauksson sem aðstoðaði Einar við flutning myndasafnsins, Egill Ólafsson, Ingimundur Einarsson og Jóhanna Skúladóttir.

Ljósmynd 2: Einar Ingimundarson.

Categories:

Tags:

Comments are closed