Líflegt hefur verið í Safnahúsi í sumar enda alls fimm sýningar í húsinu. Sumarlestri er nú lokið og var það í tíunda sinn sem héraðsbókasafn stóð fyrir lestrarátaki fyrir börn á aldrinum 6-12 ára. Í ágústlok verður þess minnst að 100 ár eru liðin frá fæðingu dr Selmu Jónsdóttur sem var fædd og uppalin í Kaupangi í Borgarnesi (nú Egils guesthouse) og átti ættir að rekja í Borgarfjarðarhérað að langfeðgatali. Verða sett upp veggspjöld um Selmu við stigauppgöngu á efri hæð. Fyrirlestraröð verður á dagskrá í upphafi vetrar og eftir áramót munu fjórar myndlistarkonur sýna í Hallsteinssal:
- janúar (lau).- 02. mars (fö) – Guðrún Helga Andrésdóttir
- mars (lau) – 20. apríl (fö) – Christina Cotofana
- apríl (lau) – 25. ágúst (fö) – Áslaug Þorvaldsdóttir
- sept. (lau) – 26. okt. (fö) – Steinunn Steinarsdóttir
Margt verður fleira á dagskrá ársins 2018 og má þar nefna árlega samstarf við Tónlistarskóla Borgarfjarðar undir heitinu „ Að vera skáld og skapa.“
Comments are closed