Samkvæmt tölfræði þeirri er finna má á þjónustuvef Landskerfis bókasafna kemur fram að heildarútlán á Héraðsbókasafni Borgarfjarðar á síðasta ári voru 18.198. Það er að segja lán á þeim eintökum sem skráð hafa verið í Gegni.
Heildarútlánatalan er þó eitthvað hærri, því enn er hluti gagna, lítill þó og fer minnkandi með hverjum mánuðinum, óskráður í Gegni og því lánaður eftir gömlu spjaldskránni. Nú stendur hinsvegar yfir skráning eintaka á handbókaherbergi og eins voru allir tónlistardiskar skráðir í Gegni í lok desembermánaðar og byrjun janúar, þannig að þessi mál eru í fullri vinnslu.
Heildarfjöldi skráðra eintaka á Héraðsbókasafni Borgarfjarðar samkvæmt áðurnefndri þjónustusíðu miðað við lok desember var 32.682.
Til gamans má geta að nú fer fram á bókasafninu óformleg könnun á fjölda gesta sem kemur á bókasafnið í mánuði hverjum. Hér er átt við alla þá sem eitthvert erindi eiga; hvort sem um útlán efnis eða skil er að ræða, heimildaleit, internetnotkun og svo framvegis. Fyrir liggja nú tölur fyrir desember 2006 og janúar 2007. Í desember voru skráðir 513 gestir en 479 í janúar. Þessar tölur eru þó aðeins viðmiðunartölur en ber ekki að taka sem hávísindalega útreikninga.
Comments are closed