Ein mynda Einars Ingimundarsonar málara hefur nú verið hengd upp í anddyri Safnahúss þar sem einnig  er gerð grein fyrir höfundi hennar í nokkrum orðum. Þetta er liður í að miðla merkum safnkosti Listasafns Borgarness með tímabundnum örsýningum. Mynd Einars er máluð ofarlega í Húsafellslandi og sýnir landslagið í nágrenni Kaldadals, tignarlega jökla og fjöll. Staðhættir og sögulegar heimildir voru einmitt stór þáttur í verkum málarans og mörg þeirra eru góð heimild um liðinn tíma.

Einar  var fæddur í Borgarnesi 24. júní 1929. Hann hélt sína fyrstu myndlistarsýningu árið 1947, stundaði myndlistarnám í Handíðaskólanum í Reykjavík og framhaldsnám í myndlist í Þýskalandi. Þar lagði hann einnig stund á nám í húsamálun, silkiprentun o.fl. Frá Þýskalandi hélt Einar til náms í Svíþjóð, þar sem hann starfaði sem húsamálari á daginn en nam myndlist á kvöldin.

 

Einar starfaði lengst af sem húsamálari í Borgarnesi, en sinnti einnig myndlistinni talsvert og hélt sýningar, þá fyrstu í Borgarnesi árið 1947. Hann tók einnig ljósmyndir og kvikmyndir af merkum atburðum í Borgarfirði og hélt sýningar á þeim í Borgarnesi og víðar. Hann hafði næmt auga fyrir náttúru og staðháttum og viðfangsefni hans voru oftast úr hans heimahéraði.

 

Einar giftist þýskri konu, Giselu Steffen (f. 1932), sem lifir mann sinn. Þau eignuðust þrjá syni: Ingimund, Stefán og Tómas. Einar lést í Reykjavík 11. desember 1997, eftir langvinn veikindi.

 

Safnahús tók saman efnið um listamanninn með góðri aðstoð sonar hans Ingimundar Einarssonar, sem m.a. útvegaði myndina sem fylgir þessari frétt.

 

 

 

Categories:

Tags:

Comments are closed