Á degi íslenskrar tungu í fyrra var opnuð í Safnahúsi Borgarfjarðar sýning á frumsömdum ljóðum og myndskreytingum nemenda fimmtu bekkja í grunnskólum héraðsins.  Þátttaka var mjög góð og áttu sumir nemendur fleiri en eitt ljóð. 

Ákveðið hefur verið að gera þetta að árlegum viðburði og þann 16. nóvember n.k kl 17:00 verður formleg opnun sýningar á ljóðum núverandi nemenda fimmtu bekkja í sal Safnahússins á neðri hæð. 

Allir hjartanlega velkomnir. 

Sýningin mun standa yfir til jóla. 

Categories:

Tags:

Comments are closed