Man ég jólin morgna, daga og kvöld,
minninganna bak við helgitjöld,
fögnuðinn, sem fyllti mína sál
er farið var með heilagt trúarmál.
í Jesú nafni jólin voru sett,
í Jesú nafni börnin voru mett,
í Jesú nafni jólagleðin var,
í Jesú nafni beðið alstaðar.
Dýrð sé Guði og drottins undramátt,
dýrð sé hverri helgri jólanátt,
hún ber í skauti boðskap frelsarans
og breiðir frið og ljós í huga manns.
Guðrún Jóhannsdóttir frá Brautarholti.
Guðrún kenndi sig við Brautarholt á Kjalarnesi, en var fædd í Sveinatungu í Norðurárdal árið 1892. Hún lést í Reykjavík 1970.
Helsta heimild: Heimilsblaðið, 1. desember 1966, bls. 222.
Comments are closed