Á íslenska safnadaginn bjóða söfn landsins heim í öllum sínum fjölbreytileika. Í Safnahúsi verður ókeypis aðgangur að öllum sýningum í tilefni dagsins og boðið er upp á leiðsögn (Bjarki Þór Gunnarsson Grönfeldt) en í húsinu eru þrjár sýningar:
Börn í 100 ár – byggðamunir og ljósmyndir.
Ævintýri fuglanna – fuglasafn Náttúrugripasafns Borgarfjarðar
Landið sem þér er gefið, minningarsýning um Guðmund Böðvarsson skáld á Kirkjubóli.
Vonast er til að heimamenn og gestir nýti sér þennan dag til safnaheimsókna og bent skal sérstaklega á hitt safnið í Borgarfjarðarhéraði: Landbúnaðarsafn Íslands, http://www.landbunadarsafn.is/ en þar er einnig viðburður á laugardeginum 12. júlí vegna 125 ára afmælis skólastarfs á Hvanneyri.
Á meðfylgjandi ljósmynd (GJ) má sjá útskorinn prjónastokk og krús úr sandsteini úr Síðufjalli (Hvítársíðu) – hvort tveggja handverk Guðmundar Böðvarssonar.
Comments are closed