Héraðsbókasafn Borgarfjarðar býður nú lánþegum sínum aðgang að Rafbókasafninu. Það byggir á OverDrive rafbókaveitunni. sem þjónar bókasöfnum um allan heim.

Í Rafbókasafninu eru mikið magn rafbóka og hljóðbóka. Meginhluti efnisins er á ensku og í formi rafbóka, en hlutur hljóðbóka fer ört vaxandi, enda njóta þær sérlegra vinsælda. Vonir standa til að íslenskar rafbækur muni bætast í safnið á næstunni. Líkt og á öðrum bókasöfnum er safnkosturinn fjölbreyttur, en þar má finna skáldverk, fræðirit og rit almenns efnis, bæði nýtt efni og klassík.

Raf- og hljóðbækurnar má lesa og hlusta á, ýmist á vef safnsins, eða í snjalltækjum með öppunum Overdrive eða Libby.  

Með aðgangi að rafbókasafni geta lesendur lesið bækur í síma eða á spjaldtölvu (öðrum en Kindle. Rafbókasafnið er alltaf opið og þar eru engar sektir, því kerfið sér sjálft um að skila bókum þegar lánstími er útrunninn.

Til að fá aðgang að rafbókasafni er nauðsynlegt að eiga gilt bókasafnsskírteini. 

Allar frekari upplýsingar veitir Sævar Ingi Jónsson héraðsbókavörður: bokasafn@safnahus.is eða í síma 4337200.

Categories:

Tags:

Comments are closed