Það er spurningin hvað varð um Hólmfríði Lofthænu og Lárus Pálsson þegar þau lögðust í ferðalag og týndust? Þeir sem vilja kynna sér þetta nánar geta lagt leið sína í Safnahús á næstunni til að skoða frábæra sýningu á verkefnum sem nemendur 1. – 7. bekkjar Varmalandsskóla hafa unnið í vetur.

Þemað er Hvað býr í fjöllunum og meðal viðfangsefna eru örlög Fjalla-Eyvindar og Höllu auk fyrrnefndarar sögu um Hólmfríði og Lárus, en hún ku hafa fundist í flösku sem rak á Landeyjarsand fyrir nokkru. Margt fleira má sjá á sýningunni svo sem kort af Íslandi með merktum leiðum útilegumanna.

 

Hér er um einkar frjóa og skemmtilega sýningu að ræða hjá krökkunum og sköpunargleðin er í fyrirrúmi. 

 

Skólastjóri og kennarar Varmalandsskóla eiga þakkir skilið fyrir að hafa komið sýningunni á framfæri við Safnahús.

 

Ljósmynd: Guðrún Jónsdóttir 

Categories:

Tags:

Comments are closed