Í fyrsta skipti efnir Héraðsbókasafn Borgarfjarðar til sumarlesturs fyrir börn á aldrinum 6-12 ára.
Tímabil sumarlesturs er frá 10.júní – 10. ágúst.
Markmiðið með verkefninu sem þreytt hefur verið víða um land með góðum árangri er að: Nemendur viðhaldi og þjálfi lestrarleikni sem þau hafa tileinkað sér í skólunum yfir veturinn.
Verkefnið er þátttakendum að kostnaðarlausu.
Börn á þessum aldri skrá sig í sumarlesturinn á bókasafninu frá og með 10. júní og fá þá um leið skjal þar sem skráðar eru þær bækur sem viðkomandi barn les á ofangreindu tímabili.
Þegar bók er aftur skilað á bókasafnið er stimplað við hvern titil og nafn þátttakenda sett á miða í pott sem dregið verður úr í lok sumars og einhverjir heppnir lestrarhestar hljóta vinning.
Öll börn geta gerst lánþegar Æskilegt er að þau yngstu komi í fylgd fullorðinna fyrstu skiptin.
Opið verður á bókasafninu í sumar alla virka daga frá kl.13-18.
Við hlökkum til að sjá sem flesta krakka á bókasafninu í sumar.
Starfsfólk Safnahúss Borgarfjarðar
Comments are closed