Bjarna Guðmundssyni var vel tekið við opnun sýningar sinnar s.l. laugardag. Þar sýnir hann texta og teikningar, en hann er þekktur fyrir textasmíð sína og hefur alltaf haft áhuga á teikningu sem dægradvöl eins og hann segir sjálfur frá. Safnahús þakkar öllum þeim sem mættu á opnunardaginn og hvetur sem flesta til að sjá þessa sýningu Bjarna við fyrsta tækifæri. Hún verður opin 13.00 - 18.00 alla virka daga og stendur til 20. janúar.