Starfsemi Safnahúss var lífleg á árinu sem leið og má sjá nokkrar myndir frá því með því að smella hér.
Um leið vekjum við athygli á nokkrum þegar dagsettum viðburðum hjá okkur árið 2015.
- Laugardaginn 28. febrúar kl. 13.00 verður listsýning Loga Bjarnasonar opnuð.
- Á sumardaginn fyrsta (23. apríl) kl. 15.00 verða tónleikar nemenda Tónlistarskóla Borgarfjarðar þar sem flutt verða lög við ljóð kvenna frá Ásbjarnarstöðum í Stafholtstungum. Við sama tækifæri verður sýningin Gleym þeim ei opnuð, en þar er saga 15 borgfirskra kvenna sögð í tilefni af 100 ára kjörgengisafmæli kvenna á Íslandi.
- Laugardaginn 7. nóvember kl. 13.00 verður opnuð sýning á teikningum Bjarna Guðmundssonar.
Þess má geta að málverkasýningu Michelle Bird lýkur 25. febrúar. Listasmiðja hennar hefur verið á föstudögum en fellur niður 13. febrúar. Næsta og síðasta smiðja verður því föstudaginn 20. febrúar 14.00 – 16.00.