Sumarið hefur verið líflegt í Safnahúsi og m.a. mikið af erlendum ferðamönnum skoðað sýningarnar þrjár í húsinu: Börn í 100 ár, Ævintýri fuglanna og Landið sem þér er gefið - minningarsýningu um Guðmund Böðvarsson skáld.

 

Sýningarnar verða opnar næstu tvær helgar en annars hefur vetraropnun tekið gildi og þá er opið alla virka daga 13-16 eða á öðrum tímum eftir samkomulagi.  Bókasafnið er eftir sem áður opið alla virka daga 13-18 og Héraðsskjalasafnið 8-16 alla virka daga. Tekið er á móti hópum, bæði skólahópum og almennum hópum og er bent á upplýsingablöð um það hér á heimasíðunni.