Á morgun föstudaginn 15. ágúst verður mikið um dýrðir í Safnahúsi, því þá verður lokum Sumarlestursins þetta árið fagnað, en alls tóku 53 börn þátt í sumar sem er nýtt héraðsmet.  Bækurnar sem þessir duglegu krakkar lásu voru um 300, hvorki meira né minna.  Uppskeruhátíðin hefst klukkan ellefu og stendur í um klukkustund að venju. Veitt verða viðurkenningar og tilkynnt um vinningshafa í happadrættinu.  Boðið uppá veitingar og farið í leiki.  Líklegt verður að teljast að Borgarnesmótið í Limbó verði háð einsog undanfarin ár.  Alir hjartanlega velkomnir.