Mynd eftir Elínu E. Einarsdóttur en Elín hefur teiknað eina mynd fyrir hvert ár sem verkefnið hefur verið í gangi í Safnahúsi |
Í þriðja sinn efnir Héraðsbókasafn Borgarfjarðar til sumarlesturs fyrir börn á aldrinum 6-12 ára. Tímabil sumarlesturs er frá 10. júní - 10. ágúst.
Markmiðið með verkefninu sem þreytt hefur verið víða um land með góðum árangri er að: Nemendur viðhaldi og þjálfi ennfremur, þá lestrarleikni sem þeir hafa tileinkað sér í skólunum yfir veturinn.
Verkefnið er þátttakendum algjörlega að kostnaðarlausu.