|
Mynd: Guðrún Jónsdóttir |
Það var líf og fjör í Safnahúsi Borgarfjarðar síðastliðinn föstudag, þegar hin árlega ljóðasýning fimmtu bekkja í grunnskólunum í nágrenninu var formlega opnuð. Í upphafi dagskrár minntist Sævar Ingi Jónsson héraðsbókavörður skáldkonunnar Júlíönu Jónsdóttur og las tvö kvæða hennar, en fleiri kvæði Júlíönu og fróðleikur um hana hefur verið komið upp á vegg í Safnahúsinu af þessu tilefni. Að lokinni kynningunni á Júlíönu, tóku leik-konur Safnahúss þær Gréta Sigríður og Elín Elísabet Einarsdætur við stjórnartaumunum og stjórnuðu leikjadagskrá sem hófst á spurningakeppni þar sem fulltrúar skólanna tóku þátt. Að þeirri keppni lokinni, var efnt til fjölmennrar limbókeppni þar sem gestir sýndu fimi sína. Í lokin var svo boðið uppá hressandi veitingar.