Tvö gömul hús í Borgarnesi voru rifin sumrin 2018 og 2019. Annað þeirra var hús sem nefnt var „Dýralæknishúsið,“ eða Gunnlaugsgata 21, sem rifið var sumarið 2018 og er hér í forgrunni.   Hitt var húsið „Veggir“ eða Gunnlaugsgata 21b sem sést hér fjær á ljósmynd Bjarna Bachmann. Húsiin stóðu á klettabrúninni við hlið Grunnskólans.   Ástæða niðurrifsins var breytingar á lóð Grunnskólans skv. deiliskipulagstillögu vegna undirbúnings viðbyggingar við skólann á sínum tíma.  Á vegum Byggðasafns Borgarfjarðar var áhersla lögð á að húsin fengju að standa vegna gildis þeirra sem sérkenna í bæjarlandslagi, en niðurstaðan varð að fjarlægja þau. 

Þess má geta að á þessu svæði höfðu  áður orðið miklar breytingar gegnum tíðina. Templarahúsið (Mæjuhús), Klöpp og Þórshamar (Gunnlaugsgata 13) hafa horfið, svo og svokallað Friðborgarhús sem stóð þar sem Gunnlaugsgata 12 er í dag.  Ennfremur eru tvö hús vestast í Gunnlaugsgötu farin þegar þetta er skrifað, Digranes sem brann 1920 og svokallað Immuhús sem stóð á sömu lóð, nefnt eftir síðasta ábúanda þess Ingibjörgu Þorleifsdóttur (1920-1990).  Immuhús var rifið á níunda áratugnum og nýtt hús byggt á lóðinni (Gunnlaugsgata 4).

Nú hafa því allmargir fulltrúar frumbyggjaáranna kvatt í bænum, sem byggðist upp á fyrri hluta 20. aldar. Húsin sem þá voru reist eru afar fjölbreytt í útliti en eiga það flest sameiginlegt að vera smá í sniðum þótt oft byggju í þeim mannmargar fjölskyldur.  Staðsetning húsanna er einkennandi fyrir bæjarstæði Borgarness, oft við kletta eða á klettabrúnum. Þetta setur fallegan svip á gamla hluta bæjarins og markar honum eldra yfirbragð.  Á yngri byggingasvæðum eru hús gjarnan stærri og þar má sjá stærri glugga og staðlaðra útlit auk einhæfari þakgerðar. Einnig eru nýrri hús byggð samkvæmt fyrirfram gerðu skipulagi, en elstu húsin ekki.

Þess má einnig geta að Gunnlaugsgata var áður tengigata milli Borgarbrautar og Kaupfélagshúsanna í Englendingavík. „Sneiðin“ tengdi göturnar saman þar sem „Himnastiginn“ er nú, milli Borgarbrautar og Grunnskólans.  Húsin tvö sem nú eru farin voru því á sínum tíma reist við götu þar sem nokkur umferð fór um.

Dýralæknishúsið – Gunnlaugsgata 21 
Húsið var byggt árið 1936 og var 125,8 fm að stærð. Það var reist af Paul Chr. Ammendrup klæð- og feldskerameistara og eiginkonu hans Maríu S. Ammendrup. Bjarni Bachmann safnvörður kallar húsið „Klæðskerahúsið” í gögnum sínum um hús í Borgarnesi.  Hjónin fluttu í Borgarnes frá Danmörku og bjuggu þar í eitt ár, síðar í Reykjavík.

Veggir – Gunnlaugsgata 21b
Þorbjörn Jóhannesson og Margrét Guðrún Sigurðardóttir fluttu í Borgarnes árið 1928 frá Stafholtsveggjum í Stafholtstungum og var húsið kennt við bæinn og kallað Veggir. Árið 1929 voru íbúar í húsinu skráðir svo: „Þorbjörn Jóhannesson tómthúsm. f. 1866. Margrét Guðrún Sigurðardóttir h.k. f. 1875, ásamt börnum sínum.“  Þorbjörn og Margrét Guðrún áttu níu börn, tvö dóu í frumbernsku. Fjölskyldan hélt skepnur og voru útihús á lóðinni sem einnig hafa horfið á síðustu árum.  Jóhannes sonur hjónanna (Jói á Veggjum) bjó loks einn í húsinu í tæp 30 ár eftir daga foreldra sinna, hann lést 23. október 2009.

Samantekt í október 2020 (GJ).
Ljósmyndir: Bjarni Bachmann og Guðrún Jónsdóttir