Í áttunda sinn efnir Héraðsbókasafn Borgarfjarðar í Safnahúsi til sumarlesturs fyrir börn á aldrinum 6-12 ára. Tímabil sumarlesturs í ár er 10.júní-10.ágúst og markmiðið með verkefninu er að nemendur viðhaldi og þjálfi þá lestrarleikni sem þeir hafa tileinkað sér í skólunum yfir veturinn.
Bókasafnið er opið alla virka daga kl. 13.00-18.00.