Á sýnngunni verður sögð saga 15 kvenna af starfssvæði Safnahúss, frá Haffjarðará og að Hvalfirði. Markmiðið er að draga nöfnin fram úr djúpi gleymskunnar. Allar voru þær á lífi árið 1915 þegar konur fá kosningarétt. Verkefnið er unnið í víðtæku samstarfi, með fjölskyldum kvennanna og öðrum tengiliðum sem setja saman fróðleik um þær sem mun liggja frammi á sýningunni. Með leyfi höfunda fara gögnin svo í heild á Héraðsskjalasafn Borgarfjarðar til varðveislu til framtíðar. Verkefnið hefur verið í undirbúningi síðan snemma hausts 2014 og sýningin stendur í hálft ár eða fram til októberloka.
Tónleikar - Á opnunardaginn verða ennfremur tónleikar, afrakstur samstarfs við Tónlistarskóla Borgarfjarðar um listsköpun ungs fólks og með aðkomu Héraðsbókasafns Borgarfjarðar. Í Safnahúsi hefur verið tekið saman ljóðasafn fjögurra borgfirskra kvenna. Nemendur skólans velja sér texta og vinna með hann undir handleiðslu kennara á vorönn. Við opnun sýningarinnar Gleym þeim ei flytja þau svo eigin verk við ljóðin, það verður aðaldagskrárliður opnunarinnar, sem verður á sumardaginn fyrsta (23. apríl) kl. 15.00. Á bilinu 10-15 verk verða flutt á tónleikunum og er yngsta tónskáldið aðeins sex ára. Er skólastjóra og kennurum Tónlistarskóla Borgarfjarðar þakkað afar farsælt samstarf um þetta þróunarverkefni sem nú kemur til framkvæmda í þriðja sinn.