Nú eru komin 4 ólík verkefni fyrir börn sem heimsækja sýninguna Börn í 100 ár. Verkefnin eru fyrir tvo aldurshópa 6 - 11 ára og svo 12 - 16 ára. Þetta eru léttar spurningar sem tengjast lífi barna síðustu 100 árin:
Skólar á Íslandi
Ungmennafélög og íþróttir
Hernámsárin
Lífskjör á Íslandi.
Við vonum að krakkar sem fara um sýninguna taki þátt og skili inn svörum og eigi þannig jafnvel von á óvæntum glaðningi með haustinu.