Almennir hópar
Í Safnahúsi er vel tekið á móti hópum. Aðgengi að sýningum hússins er gott, lyfta er í húsinu og gott aðgengi fyrir hjólastóla
Sýningar hússins eru Ævintýri fuglanna á neðri hæð hússins og Hennar eru spor í Hallsteinssal á efri hæð (sjá nánar á heimasíðu).
Í Hallsteinssal eru minni sýningar byggðar á borgfirskum menningararfi og/eða listsýningar og er fólk hvatt til að kynna sér hvaða sýningar eru uppi hverju sinni.
Verið hjartanlega velkomin!