Nú er tímabil Sumarlesturs hafið á bókasafninu en það stendur frá 10. júní – 10. ágúst  og er fyrir börn á aldrinum 6-12 ára.  Börnin koma á safnið og velja sér bók eða bækur til lesturs og skrá sig um leið í Sumarlesturinn.  Um leið og valið er lestrarefni við hæfi og eftir áhuga hvers og eins er lestrarkunnáttan þjálfuð ennfremur sem er eitt af markmiðum átaksins, annað markmið er að hafa gaman yfir sumarið með bók í hönd.  Þetta er í tíunda sinn sem Héraðsbókasafnið gengst fyrir þessu verkefni. Árlega hefur verið gerð sérstök sumarlestrarmynd og má sjá mynd ársins 2017 hér með fréttinni.  Myndirnar eru gerðar af myndlistarmanninum Elínu Elísabetu Einarsdóttur.

Fyrir hverja lesna bók fæst happamiði sem fer í pott sem dregið er úr í lok sumars þar sem nokkrir heppnir lestrarhestar hljóta vinning, en öllum þátttakendum er færður glaðningur á sérstakri sumarlesturshátíð í Safnahúsi þar sem farið er í leiki og veitingum gerð skil.  

Sjáumst á bókasafninu í sumar!

Categories:

Tags:

Comments are closed