Laugardaginn 5. mars n.k. kl. 13.00 verður opnuð sýning á verkum Michelle Bird í Hallsteinssal Safnahúsinu í Borgarnesi. Þetta er önnur sýning Michelle í Safnahúsi, en hún flutti fyrir nokkru til Íslands og býr í Borgarnesi.

Í verkum Michelle má sjá hvernig hún sem listamaður upplifir og túlkar mannlíf og umhverfi Borgarness. Viðfangsefnið er náttúrufegurð staðarins og sterk tengsl íbúa við umhverfi sitt. Innsetning er í anddyri rýmisins. Þess má geta að Michelle verður með teiknismiðju fyrir alla aldurshópa tvisvar í viku á meðan á sýningunni stendur, þriðjudaga og fimmtudaga. Vonast er til að skólar geti nýtt sér þetta til fræðslu fyrir nemendur um myndlist og vinnuaðferðir við hana.

Michelle Bird er fædd í San Francisco árið 1965. Hún er ættuð frá Bandaríkjunum og Kína en ólst upp í San Francisco, Hawai og víðar í Kaliforníu. Hingað kemur hún frá Sviss þar sem hún hefur haft vinnustofu síðustu árin. Hún lærði myndlist í Bandaríkjunum og í Hollandi þar sem hún var búsett um tíma. Þar lærði hún við Rietveld listaháskólann. Michelle Bird hefur sýnt víða um Evrópu og í Bandaríkjunum. Hún hefur haldið fyrirlestra um myndlist og haldið vinnustofur („workshops“ og auk málaralistarinnar hefur hún lagt stund á listrænt handverk.

Sýningin stendur til 08. apríl. Hún verður opin til kl. 16.00 á opnunardaginn og listakonan verður á staðnum. Eftir það verður opið virka dag 13.00 – 18.00 eða eftir samkomulagi. Aðgangur er ókeypis.

Categories:

Tags:

No responses yet

Leave a Reply