Anna Þórðardóttir Bachmann er látin, 88 ára að aldri.  Hún stóð vaktina í Safnahúsi í fjöldamörg ár ásamt manni sínum Bjarna Bachmann sem gegndi safnvarðarstarfi fyrir borgfirsku söfnin í aldarfjórðung.  Þar var mikið og óeigingjarnt starf unnið og ekki sett mörk á milli vinnu og heimilis.

Margir eiga fallegar minningar um heimsóknir til Önnu á bókasafnið þar sem hún tók svo einstaklega hlýlega á móti gestum, ungum sem öldnum.  Safnahús og sú menningarstarfsemi sem þar fer fram stóð hjarta hennar alltaf nærri.  Hún heimsótti söfnin síðast í apríl s.l. ásamt fjölskyldu sinni og þá var þessi mynd tekin inni á Pálssafni, en það safn var tilkomið á starfstíma hennar hér.  Þegar hún fór viðhafði hún góð orð um Safnahús og hvatti til frekari sigra.

Starfsfólk Safnahúss sér á bak góðum hollvini við fráfall Önnu Þ. Bachmann og sendir fjölskyldu hennar hugheilar samúðarkveðjur.

f.h. annarra starfsmanna

Guðrún Jónsdóttir forstöðumaður

Categories:

Tags:

Comments are closed